Fara í meginmál
Öll þjónusta

Töfluskipti

Rafmagnstaflan er miðstöð raflagnarinnar: þaðan liggja allar greinar hússins og þar eru varnarbúnaðurinn og rofarnir. Töfluskipti eru þegar eldri tafla er tekin niður og ný sett upp í hennar stað.

Rafmagnstafla opin, raðir af sjálfvörum og merktar greinar, rör tengd niður úr töflunni og verkfæri á gólfinu.

Í hverju verkið felst

  • Farið er yfir eldri töfluna og þær greinar sem í hana liggja.
  • Ný tafla er sett upp og lagnir tengdar að nýju.
  • Greinar eru merktar svo ljóst sé hvað hver rofi stýrir.
  • Rafmagn er af á meðan á verkinu stendur og því er tímasetning ákveðin fyrirfram.

Gott að hafa við höndina þegar haft er samband

Þessar upplýsingar flýta fyrir því að hægt sé að meta verkið:

  • Aldur töflunnar, eða hvenær hún var síðast endurnýjuð ef það er vitað.
  • Hvort um íbúð, atvinnuhúsnæði eða iðnað er að ræða.
  • Hvort rafmagn slær reglulega út.
  • Mynd af töflunni ef þú kemst að henni.
Hringja: 696-3003